
I4074 Forval - Innanhúss frágangur og stýriverktaka hæðir K2 -4h í meðferðarkjarna
Nýr Landspítali óskar eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á innanhússfrágangi í kjallara K2 til fjórðu hæðar meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík Jafnframt nær útboðið til stýriverktöku fyrir framkvæmdir á K2 til fjórðu hæðar, þ.m.t. vegna lagna (3. kafla) og rafkerfis (4. kafla), en lagnir og rafkerfi verður boðið út sérstaklega.
Stærð nýs meðferðarkjarna er um 70 þúsund fermetrar sem skiptast á 8 hæðir, þar af 2 hæðir neðanjarðar (K1 og K2). Útboð þetta tekur til allt að 55 þúsund fermetra í meðferðarkjarnanum að undanskildum legudeildum á 5. - 6. hæð. Ákveðin sérmerkt rými verða þó ekki hluti af innanhússfrágangi þessa útboðs þar sem fullnaðarhönnun þeirra er ekki lokið eða ákvarðanir hafa ekki verið teknar um útfærslu frágangs.
Forvalið er opið öllum hæfum umsækjendum og er auglýst á Íslandi og Evrópska efnahagssvæðinu (EES) samkvæmt 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (hér eftir skammstafað „OIL”). Að loknu forvali munu þeir þátttakendur sem uppfylla lágmarkskröfur um hæfi samkvæmt hæfiskröfum forvalsins vera gefinn kostur á að taka þátt í lokuðu útboði samkvæmt 35. gr. OIL.
Sjá nánar á útboðsvef
Númer forvals I4074
Skilafrestur forvals er 20. maí 2025 kl. 13