mynd af verkefninu

Fimm fyrirtæki metin hæf til að byggja nýjan Landspítala við Hringbraut

  • Eftir yfirferð forvalsgagna hjá Ríkiskaupum, í forvali nr. 21068 vegna vegna uppsteypu á nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut, hafa öll fimm fyrirtækin sem skiluðu inn þátttökubeiðni verið metin hæf til að taka þátt í útboði vegna uppsteypunnar.
  • Gerðar voru lágmarkskröfur um fjárhagslegt og tæknilegt hæfi.
  • Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin í Hringbrautarverkefninu, um 70.000m².
  • Þau fyrirtæki sem skiluðu inn þátttökubeiðni og voru metin hæf eru:
  • Eykt ehf
  • Íslenskir aðalverktakar hf
  • Ístak hf
  • Rizzani De Eccher Island S.P.A, Rizzani De Eccher Ísland ehf, Þingvangur ehf.
  • ÞG verktakar ehf
  • Engin takmörkun var á fjölda bjóðenda í forvalinu
  • Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar. Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.