
Framkvæmdir sunnan og vestan við Eirberg
Unnið er við frágang yfirborðs, lagningu á snjóbræðslu og við að leggja hellur sunnan og vestan við Eirberg á lóð Landspítala.
Gerð verður gönguleið á milli geðdeildarbyggingar og Eirbergs sem verður með snjóbræðslu.
Einnig verða lagðar tröppur frá bílastæði að Eirbergi sem verða einnig með snjóbræðslu.
Áætlað er að þessum framkvæmdum ljúki í maí.