
Gatnamót og undirgöng Burknagötu við Snorrabraut opnuð
Laugardaginn 9. nóvember var opnuð akstursleið frá Snorrabraut inn á lóð Landspítala. Um er að ræða akstursleið á gatnamótum þar sem Gamla Hringbrautin var upp við Snorrabraut.
Heiti nýju götunnar er Burknagata.
Samhliða opnun götunnar verða opnuð undirgöng fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur undir akstursleiðina.
Einnig voru tekin í notkun ný malbikuð bílastæði sunnan við undirgöngin og eru þau ætluð starfsmönnum og gestum Landspítala og Háskóla Íslands.
Snjóbræðsla verður í undirgöngunum og á göngustígum í kring.
Minnt er á að meginaðgengi að byggingum Landspítala fyrir sjúklinga er enn frá Barónsstíg og Eiríkssgötu.