
Heilbrigðisráðherra viðstödd merk tímamót í jarðvinnu við nýjan Landspítala við Hringbraut og uppsteypa hefst von bráðar
Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, var viðstödd í dag þegar hillir undir lok við sprengivinnu í grunni nýs meðferðarkjarna við Hringbraut.
Nýr meðferðarkjarni er stærsta byggingin í heildaruppbyggingu Nýs Landspítala við Hringbraut.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra: „Þetta eru stór tímamót og mikill áfangi að sjá draum okkar landsmanna um uppbyggingu Landspítala rætast. Framkvæmdir hér á svæðinu hafa gengið vel og færa okkur nær þvi markmiði að hér verði tekið í notkun nýtt þjóðarsjúkrahús árið 2026. Nýtt sjúkrahús mun breyta miklu til framtíðar allri heilbrigðisþjónustu, auka þjónustu við sjúklinga og stórbæta aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks.“
Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH ohf: „Jarðvegsframkvæmdir við grunn hússins hafa gengið samkvæmt áætlun, en ÍAV hefur verið aðalverktaki verksins. Verkefnið hefur ekki haft neina samgönguröskun í för með sér á svæðinu og um leið endurspeglar landfyllingarverkefnið gildi umhverfisþátta og þess metnaðar sem lagt er upp með. Þessi táknræna lokasprenging í grunninum segir okkur að nú sé næsta stóra verkefnið að steypa upp húsið og áætlanir NLSH eru að uppsteypan geti hafist von bráðar í samræmi við heimildir. Fimm verktakar munu fljótlega skila inn tilboðum í lokuðu útboði“.
Meðferðarkjarninn er stærsta byggingin á skipulagsreit Hringbrautarverkefnisins og í henni verður þungamiðjan í starfsemi Landspítalans. Gerðar hafa verið sambærilegar kröfur um aðbúnað í meðferðarkjarna og í nýjum háskólasjúkrahúsum í nágrannalöndum okkar.
Meðferðarkjarninn er hugsaður út frá starfsemi bráða- og háskólasjúkrahúss, með áherslu á einfalt og skýrt fyrirkomulag ásamt greiðum leiðum milli starfseininga.