
NLSH auglýsir eftir þátttöku vegna útboðs á hönnun húsnæðis fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Nýr Landspítali ohf. (NLSH) í samstarfi við Háskóla Íslands auglýsir í dag í dagblöðum um þátttökurétt vegna lokaðs útboðs á hönnun húsnæðis fyrir Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands.
Húsnæðið er nátengt nýjum Landspítala og er um að ræða opið forval, auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES) skv. 4. mgr. 23. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.
Fyrirkomulag forvals er að bjóðendur skili inn upplýsingum um hæfi sbr. forvalsskilmála.
Umsóknum skal skila rafrænt inn á TendSign fyrir kl. 10:00 þann 13. júlí 2021.
Nánari upplýsingar er að finna í rafrænu útboðskerfi Ríkiskaupa, https://tendsign.is/
Leiðbeiningar: https://www.rikiskaup.is/is/ utbodsthjonusta/ leidbeiningar-fyrir-tendsign