
Tilboð í fullnaðarhönnun í bílakjallara undir Sóleyjartorgi
Um helgina birtist auglýsing frá NLSH ohf. þar sem óskar er eftir tilboðum í fullnaðarhönnun á bílakjallara undir Sóleyjartorgi.
Um er að ræða almennt útboð sem er auglýst á evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Fyrirkomulag útboðs er þannig að bjóðendur skulu skila inn upplýsingum um hæfi og tilboði í þóknun fyrir ráðgjafarstörf.
Tilboðum skal skilað fyrir 9.febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar er að finna í rafrænu á vef Ríkiskaupa, https://tendsign.is/